14.05.2012 11:32

Vinnufundur

Vinnufundur verður í kvöld í Hafnargötu 1.
Áhersla verður lögð á að koma bílasal í viðunandi ástand til að hægt sé að skila af okkur Mettubúð.
Mætum öll!!!

09.04.2012 23:01

Ófærð á Fróðarheiði

Þrír félagar úr sveitinni fóru seinnipartinn í dag til að aðstoða bíl á Fróðárheiði, það verkefni gekk vel og þegar þeir voru komnir í hús kom annað útkall. Aðrir þrír félagar tóku við og aðstoðuðu lítinn sendibíl sem var útaf veginum á Fróðárheiði. Á leiðinni til baka var jeppi útaf veginum ekki langt þar frá, vel gekk að koma honum upp á veg. Fljótlega komu önnur boð frá neyðarlínunni um bíl sem... var fastur sunnan megin á heiðinni. Þegar þar var komið reyndist enginn bíll vera, því var haldið í hús. Þegar komið var í hús kom önnur beiðni þar sem annar bíll var fastur sunnanmegin á heiðinni. Fjórir félagar fóru í það verkefni, gekk það vel og var komið í hús um klukkan 22:00.
Það er því rétt að benda á að Fróðárheiði er ófær eins og er.

25.03.2012 22:28

Björg í útkalli

Björg, bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Rifi var kallaður út á ellefta tímanum í morgun vegna vélarbilunar í Glaði SH frá Ólafsvík. Magnús Emanúelsson skipstjóri á Björg sagði í samtali við Skessuhorn  að Glaður hefði verið á leið til veiða í morgun þegar vélarbilun hafi orðið, en þá var báturinn staddur 17 mílur norðaustur af Ólafsvík. Ekkert amaði að skipsverjunum tveimur í áhöfn Glaðs. Tók Björg bátinn í tog til Ólafsvíkur þangað sem komið var að landi á fjórða tímanum í dag. Gott veður var á miðunum og gekk heimferðin vel.


Fréttin er tekin af Skessuhorni.is
  • 1
Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 94
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 234197
Samtals gestir: 48873
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:04:23