21.01.2012 17:55
Fastir bílar
Hin beiðnin kom á Purkhóla var þar maður fastur á Saab bifreið vel gekk að draga hann upp. Tveir félagar úr sveitini tóku þátt í aðgerðum dagsins.
04.01.2012 17:29
Mikil hálka í Staðarsveit
02.01.2012 18:09
Ferðamenn í vandræðum við Vatnshelli
Þrír félagar fóru í dag á Unimog bíl sveitarinnar og aðstoðuðu ferðamenn á föstum bíl við Vatnshelli. Við minnum á að þegar þessi orð eru skrifuð er Útnesvegur ófær við Purkhól .
31.12.2011 18:01
Áramótakveðjur
Formaður.
24.12.2011 23:16
Jólaútkall.
Myndirnar tók Orri.
24.12.2011 12:32
Jólakveðjur
Félagar í björgunarsveitinni Lífsbjörg og unglingadeildinni Dreka við óskum ykkur gleðilegra jólahátíðar og hittumst í hátíðarskapi í flugeldavinnuni
Stjórn Lífsbjargar.
23.12.2011 15:54
Viðbragðstaða
mjög slæm veðurspá er fyrir landið og búist er við töluverði úrkomu.
21.12.2011 17:41
Vinnufundur
Mætum öll!!!
07.12.2011 22:11
Tilboð frá Olís
Kæri félagi
Eins og flestum ætti að vera ljóst þá hafa Slysavarnafélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Samningurinn var undirritaður á landsþingi samtakanna sem fór fram á Hellu. Í samstarfssamningnum er sérstaklega kveðið á um sérkjör á eldsneyti og öðrum vörum fyrir félagsmenn, vini og vandamenn björgunarsveita og slysavarnardeilda á Íslandi.
Til viðbótar við þann afslátt sem félagsmenn fá rennur 1 króna af hverjum seldum lítra + 2.500 krónur eftir að lágmarksnotkun hefur verið náð (200 ltr) til þeirrar sveitar sem valin er í umsóknarferlinu.
Við hvetjum alla félagsmenn til að sækja um Tvennukort Olís/ÓB. Fjárhagsstuðningur sem innifalin er í notkun á kortinu getur skipt milljónum og veitir okkur enn frekar tækifæri til eflingar á okkar sveitum.
Í meðfylgjandi viðhengi eru nánari upplýsingar og linkur til að sækja um kortið. Einnig er hægt að sækja um kortið hér http://www.olis.is/landsbjorg
Kortið er afsláttarkort og notist með öðrum greiðslumiðlum. Kortið er sent heim til viðkomandi án nokkurs kostnaðar.
Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við undiritaðan
Með von um að þetta nýtist sem flestum.
Jón Ingi Sigvaldason
Markaðs og Sölustjóri / Sales and Marketing Manager
Slysavarnafélaginu Landsbjörg
ICE-SAR; Icelandic Association for Search and Rescue
570 5900 - 570 5909 - 892 9686 - fax 570 5901
30.11.2011 00:07
Tvær aðstoðarbeiðnir í dag
Kl 22:00 í kvöld fóru þrír menn frá sveitini að beiðni Lögreglu til aðstoðar fólks sem var fast í snjóskafli á bíl sínum í Stapabrekkuni mikill snjór var í brekkuni og tók drjúga stund að losa bílinn veður er NA 15 m/s og skafrenningur áætlaður komutími í hús er kl 1:00.
