Færslur: 2012 Febrúar
29.02.2012 21:30
Lionsklúbbur Ólafsvíkur fundar í Hafnargötu 1
Sunnudagskvöldið síðastliðið fundaði Lionsklúbbur Ólafsvíkur í nýju björgunarstöðini og var meðal annars rædd um bætt aðgengi að ströndini á Öndverðarnesi en björgunarsveitin hefur nú í nokkur ár farið þess á leit við forráðamenn þjóðgarðsins að aðgengi að ströndini verði bætt til að hægt væri að koma björgunatækjum og búnaði ef skipstrand eða hverskonar slys ber að höndum þar. Að því loknu skoðuðu Lionsmenn húsið en þeir eru því ekki alveg ókunnir því að fyrir nokkru síðan styrktu þeir okkur veglega með málningu og máluðu félagsaðstöðuna fyrir okkur. Við í sveitini þökkum kærlega fyrir heimsóknina.


Skrifað af Davíð Óla
10.02.2012 21:05
112 dagurinn
Viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ verða með læti og fjör á 1.1.2
daginn. Farið verður í bílalest frá Líkn Hellissandi kl. 16:15, ekið um
Naustabúð, Snæfellsás og Munaðarhól á Hellissandi. Í Ólafsvík verður
ekið um Engihlíð, upp Grundarbraut og niður Klifbraut, út Ólafsbraut að
Mettubúð. Í Mettubúð og slökkvistöð verða allir viðbragðsaðilar með
sýningu á búnaði frá kl. 16:00.Í boði verður blóðþrýstingsmæling og
blóðsykurmæling fyrir þá sem vilja. Slysavarnadeildirnar Helga
Bárðardóttir og Sumargjöf ásamt Snæfellsbæjardeild RKÍ verða með
kynningu á sínu starfi.
Skrifað af Davíð Óla
08.02.2012 23:02
Kynning á Sjókalli
Á morgun Miðvikudag kl 20:00 í Hafnargötu 1 verður kynning á Neyðarsendi (Sjókalli) þetta er áhugavert öryggistæki sem er ætlað í til dæmis í björgunarvesti áhafnarmeðlima skipa og báta.
Allir eru velkomnir á kynninguna.
Skrifað af Davíð Óla
- 1
Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 94
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 234197
Samtals gestir: 48873
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:04:23
