Flokkur: Útköll

16.08.2011 21:58

Fastur bíll í Mávahlíðafjöru

Í kvöld barst aðstoðarbeiðni vegna ferðamanna sem fastir voru í Mávahlíðafjöru. 
Tveir menn fóru á Fordinum til aðstoðar.  Þegar komið var á staðinn kom í ljós að þarna voru þrír ferðalangar á ferð frá Ísrael.
Þau höfðu beygt útaf þjóðveginum og á slóða niður í fjöru, en þegar þau voru að snúa við þá vildi ekki betur til en að húsbíllinn sem þau voru á sökk í sandinn og festist.
Þegar átti að fara draga bílinn upp kom í ljós að enginn krókur var aftan á húsbílnum, og ekki var hægt að draga hann áfram þar sem að fyrir framan hann var sandbakki.
Settist því annar maðurinn frá Lífsbjörg inn í bílinn og reyndi að jugga honum til og á meðan var ýtt framan á bílinn. 
Bílinn hafðist upp að lokum og allt gekk að sjálfsögðu vel.

08.08.2011 22:05

Maður í sjálfheldu við Rauðfeldargjá

Útkall barst í dag frá neyðarlínu um mann sem væri í sjálfheldu í Rauðfelldargjá austan við Arnarstapa.
6 manns fóru frá Lífsbjörg á staðinn ásamt því að þar var einnig einn maður úr svæðistjórn á staðnum.
Sá er í sjálfheldunni var reyndist vera í lítilli gjá austan við sjálfa Rauðfeldargjánna.  Hafði hann farið úr hópnum sem hann var í og ákveðið að klifra eitthvað á sjálfsdáðum uppá við.
Gekk sú ferð ekki betur en það að þegar hann hugðist á niðurleið treysti hann sér ekki til að komast sjálfur niður úr gjánni, enda mjög laus skriða þar sem að hann sat fastur.

Einn maður var sendur með línu upp fyrir manninn sem trygging.  Annar fór síðan upp til hans og aðstoðaði hann í belti og festi hann svo í línu.  Síðan var hann látinn brölta í rólegheitum niður á við úr gjánni með stuðning.
Allt gekk vel fyrir sig og ekkert kom upp á, þó reyndar ringdi aðeins yfir björgunamenn grjóti þar sem að skriðan var verulega laus.  En það voru minni grjót og allir að sjálfsögðu með hjálma og því lítil hætta á ferð.

01.02.2008 15:00

Sóttur slasaður sjómaður

Sóttur slasaður maður  sótur út í Saxhamar SH 50

13.12.2007 07:25

Óveður í Snæfellsbæ

Að beiðni Lögreglu í Snæfellsbæ er Bjsv Lífsbjörg kölluð út vegna platna sem eru að fjúka á Ennisbraut í Ólafsvík

10.12.2007 20:30

Óveðursaðstoð í Snæfellsbæ


Kl 20:30 Óskað er eftir að félagar úr Bjsv Lífsbjörg athugi með 2 konur sem fóru á bíl sínu fram hjá Gufuskálum Kl 18:15 og voru á leið í Staðarsveit en voru ekki komnar. um það leiti sem verið var að fara af stað úr húsi í komu þær fram og höfðu þær fest bílinn í skafli. Kl 20:50 Lögreglan í Snæfellsbæ óskar eftir að sveitin athugi með hús í Ólafsvík sem plötur eru farnar að losna af en veður fer versnandi.

27.11.2007 20:35

B/b Björg Rifi aðstoðar bát með bilað stýri

Skipstjóri á Særif SH óskar eftir aðstoð vegna þess að stýri bátsins er fast í öðru borðinu. B/b Björg fer úr Rifshöfn með 3 menn í áhöfn kl 16:45. Komnir með bátinn í tog á stað 65°12 N - 23°40 W kl 18:10. Veður var hæg S-W átt og undiralda. komnir aftur í Rifshöfn með Særif 21:15.

26.11.2007 20:45

Þakplötur að fjúka í Snæfellsbæ


Íbúi í Rifi Snæfellsbæ óskar eftir að félagar í bjsv Lífsbjörg athugi með járnplötu sem var að losna af þakkanti en veður var slæmt vindur S-AU 18-23 m/s og meira í hviðum. Kl 4:30 4 félagar kallaðir út og eftir að búið var að negla nyður plötuna var ástandið í bænum athugað komið var í hús kl 6:00.

18.11.2007 20:46

Fastir Bílar á Jökulhálsi og í Eysteinsdal (Snæfellsjökull)

Kl 8:30 óskað var eftir aðstoðar bjsv Lífsbjargar Snæfellsbæ vegna bíls sem var fastur í Eysteinsdal Unimog sveitarinnar var sendur upp í Eysteinsdal en þá kom í ljós að bíllinn hafði farið frá Jökulhálsi í dalinn og komst því Múkkinn ekki að honum var þá Fordinn sendur upp jökulhálsinn og gékk honum greiðlega að losa bílinn var mannskapur aftur komin í hús kl 11:30. Kl 17:00 aftur er beðið um aðstoð vegna bíls skrn DE 249 sem var fastur á Jökulhálsi 3 menn á Ford sveitarinnar fóru á staðinn og drógu bílinn lausan var komið í hús Kl 18:50. 6 menn tóku þátt í aðgerðum dagsins.

31.10.2007 20:51

Ferðamenn aðstoðaðir á Sunnanverðum Jökulhálsi (Snæfellsjökull)


Lögreglan í Snæfelsbæ biður um aðstoð vegna hjóna sem voru föst á bíl sínum á sunnanverðum Jökulhálsi. Kl 16:30 fóru 3 menn úr bjsv Lífsbjörg Snæfellsbæ á Unimog sveitarinnar úr húsi og var um að ræða hjón á Santa Fe jeppling sem var fastur í skafli vel gékk að losa bílinn og var komið aftur í hús kl 18:30

31.10.2007 20:47

Ferðamenn aðstoðaðir á Fróðarheiði.


Beiðni kemur um að bjsv Lífsbjörg Snæfellsbæ aðstoðaði fólk sem var komið útaf veginum á bíl sínum á Fróðarheiði. veður var á Heiðnni N-AU 18-23 m/s og Snjóbylur. Kl 14:05 2 menn á Ford jeppa sveitarinnar fara af stað en þegar á staðinn var komið var búið að hjálpa fólkinu upp á veginn aftur. komið var í hús aftur kl 14:55.

27.10.2007 20:54

Fastur bíll í Eysteinsdal við rætur Snæfellsjökull


Beðið var um aðstoð vegna fólks sem var fast á bíl sínum í Eysteinsdal við rætur Snæfellsjökull. Kl 17:18 fóru 2 menn frá bjsv Lífsbjörg á Unimog sveitarinnar og voru komnir aftur í hús Kl 19:45. Mjög blautt var á svæðinu en veður gott og gékk aðgerðin ágætlega.

10.10.2007 20:56

Útlendingar fastir í bíl á Jökulhálsi.


Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar (FML) biður um að athugað verði með Frakka sem er fastir í snjó á Jökulhálsi. Bjsv. Lífsbjörg kölluð út. Formaður svæðisstjórnar var erlendis og benti hann á Davíð Óla. Birgir Tryggvason svaraði beiðni bakvaktar og sendi bíl á Jökulhálsinn. Fóru tveir menn úr sveitinni á jeppa uppá jökulháls og leituðu af Frökkonum í um klukkutíma fundu þá svo í Eysteinsdal þar semar þeir sátu fastir í snjóskafbl, var bíllinn svo dreginn upp og komið aftur í hús kl.13:25

01.10.2007 21:00

Bilaður bátur dregin til lands


Kl:14,00 Vaktstöð siglinga lét vita að m/b Signý HU-13 ssk: 2630 Væri með bilaða vél skammt suður af Bjargtöngum og óskaði eftir aðstoð .Kl:14,20 fór b/b Björg út frá Rifi. m/b Signý tekin í tog til Rifshafnar á stað:65°24,5 N-24°21,3 W Kl:20,30 komið að bryggju í Rifi

21.09.2007 20:08

Úlla SH dregin til hafnar í Rifi..



  Áhafnarmeðlimur á Úllu SH í kröppum dansi í dag...       Björgin með Úllu SH í togi...

Um kl 16:40 í dag var kallað  út á F1 rauðum.
Var þá vélarvana bátur rétt fyrir utan Rif, eða um það bil hálfa sjómílu frá Töskunni.
Reyndist þetta vera báturinn Úlla SH.  
Björgunarskipið Björg fór þegar af stað með 5 manns um borð.  Ekki voru liðnar nema 5-6 mínótur frá því að útkallið kom að Björgin var lögð af stað.
Litlu mátti muna að illa færi því að Úlla átti eftir aðeins nokkra tugi metra eftir í að lenda í stórgrýttri fjörunni.
Leiðindasjólag var og frekar kröpp bára, vindur var af Norðaustri 13-18 m/s
Áhöfnin á Björginni náði með snarræði sínu að koma taug yfir í Úllu SH áður en hún rak upp í fjöru.
Einnig voru til taks björgunarmenn í landi ef að illa hefði farið.
Vel gekk að draga Úllu áleiðis til hafnar, og var áhöfnin ómeidd og við góða heilsu eftir hrakningarnar.

01.04.2007 15:37

Vélarvana skip dregið að landi


Björgunarskipið Björg vinnur nú að því að draga línubátinn Þorlák ÍS-15 sem tilkynnti upp úr hádeginu um vélarbilun þar sem hann var staddur um tvær sjómílur fyrir utan Beruvík á Snæfellsnesi. Taug var fest á milli björgunarskipsins og Þorláks um klukkan tvö en í millitíðinni hafði línubáturinn Jóhanna Gísladóttir ÍS-7 komið Þorláki til aðstoðar að sögn Landhelgisgæslunnar.

Að sögn Haraldar Einarssonar, afleysingaskipstjóra Jóhönnu Gísladóttur, gekk allt eins og í sögu. ?Þetta var bara eins og draga einhvern bíl upp úr snjóskafli. Við hentum spotta í hann og dóluðum með hann í um klukkutíma [þar til björgunarbáturinn kom],? sagði Haraldur.

Veðrið er með sæmilegasta móti að sögn Haraldar og þá varð engum úr áhöfn skipanna meint af þessu.

Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 94
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 234197
Samtals gestir: 48873
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:04:23